05.08.2009 10:17:23 / valurhb8kv
Skráningar í fullum gangi í handboltaskóla vals
Vikuna 10.-14. ágúst verður námskeið fyrir börn í handbolta í Vodafone höllinni. Námskeiðið verður frá 9-12 fyrir börn fædd 1999-2003 og kostar 5.000 krónur. Frá 12:30-14:00 er námskeið fyrir eldri börn fædd 1996-1998 og kostar það 2.500 krónur. Lögð verður sérstök áhersla á þjálfun í smærri hópum auk einstaklingsþjálfunar fyrir eldri þátttakendur skólans. Handboltaskóli Vals verður með glæsilegu sniði, þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og unnið verður í undirstöðuatriðum. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skólastjóri verður Óskar Bjarni Óskarsson, meistaraflokksþjálfari Vals. Tekið er við skráningum á netfanginu skar@valur.is">oskar@valur.is og á skrifstofu félagsins.
»
24.09.2008 11:27:52 / BlogCentral
Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!
»